Jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla
Almenn jöfnunarframlög
Langstærstur hluti af því fjármagni, sem rennur til Jöfnunarsjóðsins vegna yfirfærslu alls grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga, fer í svokölluð almenn jöfnunarframlög. Þau eru reiknuð út á grundvelli reiknilíkans sem ætlað er að lýsa sem best útgjaldaþörf sveitarfélaga m.t.t. fjölda nemenda í hverju sveitarfélagi og stærðar þess eða þeirra skóla sem sveitarfélagið rekur eða nýtir. Einnig er tekið mið af útsvarstekjum sveitarfélaga vegna yfirfærslunnar og á þeim grundvelli er reiknuð út þörf hvers sveitarfélags fyrir viðbótartekjur, þ.e. almennt jöfnunarframlag.
Útreikningur almennra jöfnunarframlaga fer fram í desember ár hvert fyrir næsta fjárhagsár og þurfa sveitarfélög ekki að sækja um þau sérstaklega. Framlögin eru greidd sveitarfélögum í lok hvers mánaðar og tekur hver greiðsla mið af staðgreiðsluskilum.
Sérþarfir fatlaðra nemenda
Jöfnunarsjóður úthlutar viðbótarframlögum til sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum. Framlögin eru veitt á grundvelli umsókna frá lögheimilissveitarfélögum nemendanna og er það skilyrði að nemendur hafi verið greindir fatlaðir af Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands eða Sjónstöð Íslands og falli undir viðmiðunarreglur Jöfnunarsjóðs.
Jöfnunarsjóður sendir sveitarfélögum í upphafi hvers skólaárs bréf þar sem þessi framlög og vinnureglur eru kynntar, sem og eyðublöð vegna umsókna sveitarfélaga fyrir næsta fjárhagsár. Framlögin eru greidd í lok hvers mánaðar.
Sérskólar/sérdeildir
Við yfirfærslu grunnskólans í ágúst 1996 tók Reykjavíkurborg að sér rekstur þeirra sérskóla/sérdeilda sem áður höfðu verið rekin af ríkinu. Á grundvelli sérstaks samnings milli Reykjavíkurborgar, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga berast borginni mánaðarlegar greiðslur úr Jöfnunarsjóði vegna þess reksturs.
Nýbúafræðsla
Jöfnunarsjóður úthlutar einnig viðbótarframlögum vegna sérstakrar íslenskukennslu nýbúa. Kennsluráðgjafi í nýbúafræðslu miðlar upplýsingum til Jöfnunarsjóðs fyrir 1. október ár hvert um fjölda þeirra nemenda er nýtur sérstakrar íslenskukennslu í sveitarfélagi vegna framlaga á næsta fjárhagsári. Kennsluráðgjafinn veitir ennfremur sveitarfélögum og grunnskólum almenna ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi sjálfa kennsluna.
Framlögin eru greidd í lok hvers mánaðar.
Skólabúðir að Reykjum
Sérstakt framlag er veitt til reksturs skólabúða að Reykjum í Hrútafirði á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um kostnaðar- og tekjutilfærslu vegna flutnings grunnskólans 1996.
Húnaþing vestra annast rekstur búðanna, sbr. samning þar að lútandi milli sveitarfélagsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Framlag á grundvelli samningsins er greitt mánaðarlega.
Barnaverndarstofa
Barnaverndarstofu er greitt framlag vegna kennslu þeirra barna sem vistuð eru af stofnuninni utan lögheimilissveitarfélags. Jöfnunarsjóður innheimtir síðan þann kennslukostnað hjá viðkomandi sveitarfélagi.
Önnur framlög til reksturs grunnskóla
Jöfnunarsjóður veitir svoköllluð önnur framlög til sveitarfélaga vegna ófyrirséðra tilvika við kennslu í grunnskólum sem hafa í för með sér verulega íþyngjandi kostnað umfram tekjur. Framlögunum er úthlutað til sveitarfélaga á grundvelli umsókna og koma til greiðslu á fyrri hluta árs fyrir árið á undan.
Heimilt er að veita framlög til sveitarfélaga og annarra aðila vegna einstakra verkefna, nýsköpunar eða þróunarvinnu sem nýtast sveitarfélögum á landsvísu og eru til að bæta skólastarf og rekstur grunnskóla.
Til annarra framlaga teljast einnig framlög sem úthlutað er á grundvelli sérstakra samninga vegna verkefna sem nýtast sveitarfélögum á landsvísu við rekstur grunnskóla. Sem dæmi um slík verkefni er kennsla langveikra barna á grunnskólaaldri sem eiga lögheimili utan Reykjavíkurborgar en dvelja á sjúkrahúsum í borginni.
