Sérstök framlög

Sérstökum framlögum er úthlutað úr Jöfnunarsjóði til eftirfarandi verkefna:

Framlög vegna sameininga sveitarfélaga

Framlögum er úthlutað á grundvelli heimildarákvæða reglna um fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, nr. 295/2003 með síðari breytingum.

Á grundvelli reglnanna greiðast eftirtalin framlög:

  • Framlag vegna könnunar á hagkvæmni sameiningar, kynningu á sameiningartillögu og framkvæmd atkvæðagreiðslu, sbr. sérstakar vinnureglur frá 18. apríl 2008.

Vinnureglur vegna sameininga sveitarfélaga

  • Framlag vegna sameiningar á bókhaldi sveitarfélaga.
  • Framlag vegna jöfnunar á fjárhagsstöðu sveitarfélaga við sameiningu.
  • Óskert tekjujöfnunar- og útgjaldajöfnunarframlag á sameiningarári.
  • Sérstakt framlag í fjögur ár vegna skerðingar er kann að verða á úthlutun tekjujöfnunar- og útgjaldajöfnunarframlaga í kjölfar sameiningar.
  • Framlög vegna endurskipulagningar þjónustu og stjórnsýslu í nýju sveitarfélagi í allt að fimm ár frá sameiningu.

Tengt efni:

  1. Upplýsingavefur félagsmálaráðuneytisins vegna sameiningar sveitarfélaga í tengslum við átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins.
  2. Aðkoma Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - 16.09.2005

Framlög vegna fjárhagserfiðleika sveitarfélaga

Framlögum er úthlutað til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga í samræmi við tillögur frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Framlögum er úthlutað á grundvelli 75. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998 með síðari breytingum.

Framlög vegna stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum

Framlög eru veitt til greiðslu stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum, sbr. reglugerð nr. 973/2000 sbr. 1196/2007 með síðari breytingum, allt að 25 millj. kr. á ári. Stjórn Bændasamtaka Íslands gerir í lok hvers árs tillögur til samgönguráðuneytisins um úthlutun framlaganna og annast greiðslur til framkvæmdaaðila. Umsóknir um framlög til vatnsveituframkvæmda verða að berast skriflega til Bændasamtaka Íslands fyrir 1. mars á framkvæmdaári.

Framlög vegna breytinga á álagningarstofni mannvirkja

Framlögum er úthlutað til að jafna tekjutap sveitarfélaga í kjölfar breytinga á álagningarstofni fasteignaskatts sem tóku gildi 1. janúar 2001, sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum. Framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins reiknast sem mismunur á núgildandi fasteignamati og eldri álagningarstofni og er mismunurinn margfaldaður  með álagningarprósentu yfirstandandi árs. Útreiknað framlag er síðan aðlagað að fjármagni til ráðstöfunar.

Framlög vegna húsaleigubóta

Jöfnunarsjóður greiðir framlög til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum samkvæmt lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, með síðari breytingum. Með tilvísun til 3. gr. reglugerðar um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003, með síðari breytingum, skulu greiðslur Jöfnunarsjóðs berast sveitarfélögunum ársfjórðungslega vegna greiðslna þeirra á húsaleigubótum. Greiðslurnar skulu inntar af hendi eigi síðar en 20 dögum frá lokum ársjórðungsins þ.e. eigi síðar en 20. apríl, 20. júlí, 20. október og 20. janúar að því tilskildu að umsóknir þar að lútandi og fullnægjandi gögn hafi borist sjóðnum eigi síðar en 10 dögum áður.

Sveitarfélögum ber að skila ársfjórðungslegum umsóknum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga inn í Smalann, rafrænt umsjónar- og úrvinnslukerfi sjóðsins. Sveitarfélög skulu jafnframt með rafrænum hætti skila fyrir 1. nóvember ár hvert áætlun um heildargreiðslur húsaleigubóta næsta árs miðað við grunnfjárhæðir bóta.

Í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur er tók gildi 1. apríl 2008 er kveðið á um hækkun grunnbóta húsaleigubóta og 60% kostnaðarþátttöku ríkisins í þeim viðbótarkostnaði sem sú hækkun hefur í för með sér. Einnig er kveðið á um 60% kostnaðarþátttöku ríkisins í  greiðslum sveitarfélaga á  sérstökum húsaleigubótum.

Samkomulag vegna húsaleigubóta

Áætlun um greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga innan ársins tekur mið af áætluðum greiðslum sveitarfélaga á almennum og sérstökum húsaleigubótum að teknu tilliti til áætlunar um ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til verkefnisins.

Áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum er 51,5% á árinu 2011. Áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna greiðslu sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum er 60% á árinu 2011.

Þróun fjölda bótaþega og raungreiðslna húsaleigubóta með tilkomu samkomulagsins um húsaleigubætur frá 1. apríl 2008:

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur var gefið út rafrænt að loknum hverjum ársfjórðungi á heimasíðu ráðuneytisins á árunum 2003 – 2008. Stefnt er að útgáfu fréttabréfsins að nýju.

Framlög vegna sérstakra verkefna

Jöfnunarsjóði er heimilt að greiða framlög til verkefna á vegum sveitarfélaga eða samtaka þeirra sem hafa að mati ráðgjafarnefndar sjóðsins mikla þýðingu fyrir sveitarfélögin og uppfylla annað hvort eftirfarandi markmiða:
a. að stuðla að þróun til hagræðingar í rekstri og/eða þjónustu sveitarfélaga,
b. að aðstoða sveitarfélög sem orðið hafa fyrir verulega íþyngjandi og ófyrirséðum útgjöldum vegna lögákveðinna verkefna eða af öðrum ástæðum sem ráðgjafarnefnd metur gildar.

Umsóknir þurfa að berast Jöfnunarsjóði fyrir 1. nóvember ár hvert.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica