Málefni fatlaðra

Yfirfærsla á málefnum fatlaðra

Málefni fatlaðs fólks fluttust hinn 1. janúar 2011 frá ríki til sveitarfélaga. Samfara yfirfærslunni gengu í gildi breytingar  á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum og lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 með síðari breytingum.

Þá tóku jafnframt gildi tvær reglugerðir, sem settar voru af innanríkisráðherra og kveða nánar á um hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í tengslum við yfirfærsluna. Annars vegar er um að ræða reglugerð, nr. 1066/2010, um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fók á árinu 2011 og hins vegar reglugerð, nr. 1067/2010, um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Við yfirfærsluna var Framkvæmdasjóður fatlaðra lagður niður og tók Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga  yfir réttindi og skyldur sjóðsins.

Á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða frá 6. júlí 2010, er áætlað að 10.700 m.kr. samtals renni til málaflokksins í ár, með hækkun útsvars um 1,2 prósentustig  og með beinum framlögum frá ríki. Af útsvarshækkuninni renna 0,25 prósentustig beint til sveitarfélaga /þjónustusvæða en 0,95 prósentustig renna til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem annast jöfnunaraðgerðir í tengslum við yfirfærsluna og úthlutun beinna framlaga frá ríki.

 



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica