Aðdragandi

Aðdragandi yfirfærslunnar

Flutningur málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga á sér langan aðdraganda. Árið 1996 samþykkti Alþingi breytingu á gildandi lögum um málefni fatlaðra þar sem félagsmálaráðherra var falið að undirbúa yfirfærslu málaflokksins. Þrátt fyrir ítarlegan undirbúning, næstu ár á eftir, tókst ekki samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga.

Umræða um málið var endurvakin í ársbyrjun 2007 að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og í apríl það sama ár var skipuð sérstök verkefnisstjórn til að undirbúa yfirfærsluna.  Þann 13. mars 2009 var undirritað formlegt samkomulag ríkisstjórnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að yfirfærslan tæki formlega gildi þann 1. janúar 2011. Rúmu ári síðar þann 6. júní 2010 var undirritað samkomulag um fjárhagsramma yfirfærslunnar og endanlegt samkomulag aðila um tilfærslu þjónustu við fatlaða var staðfest þann  23. nóvember 2010. Í framhaldi af því samþykkti Alþingi í desember 2010 breytingar á ýmsum þeim lögum sem snúa að málaflokknum í samræmi við samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna.



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica