Fasteignasjóður

Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs

Samkvæmt 7. gr. samkomulags ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlaða færast yfirráð allra fasteigna í eigu ríkisins sem nýttar eru í þjónustu við fatlaða til sérstaks Fasteignasjóðs sem er í umsjón Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.  Jafnframt tók  Fasteignasjóðurinn yfir réttindi og skyldur Framkvæmdasjóðs fatlaðra sem var lagður niður við yfirfærsluna í ársbyrjun 2011.  

Með starfsemi Fasteignasjóðsins skal tryggja sem jafnasta aðstöðu sveitarfélaga vegna fasteignamála í þjónustu við fatlaða og hefur innanríkisráðherra gefið út reglugerð nr. 1067/2010 um starfsemi sjóðsins.

Verkefni Fasteignasjóðsins er m.a. að leigja eða selja sveitarfélögum eða þjónustusvæðum þær fasteignir sem heyra undir sjóðinn og verður söluandvirði eignanna og öðrum tekjum sjóðsins umfram gjöld ráðstafað til sérdeildar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlaða til jöfnunar vegna búsetuþjónustu við fatlað fólk.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica