Húsnæðisjöfnun

Húsnæðisjöfnun

Eitt af hlutverkum Jöfnunarsjóðs vegna yfirfærslu á málum fatlaðra snýr að jöfnun vegna húsnæðiskostnaðar. Úthlutað verður framlögum til sveitarfélaga/þjónustusvæða til að mæta kostnaði vegna leigu eða reksturs íbúða- eða þjónustuhúsnæðis fyrir fatlaða, að teknu tilliti til þess hvaða þörf er fyrir jöfnun á fasteignakostnaði.  Þessi framlög koma til viðbótar tekjum af framleigu til notenda þar sem það á við. Úthlutun framlaga hefst á árinu 2012. Á árinu 2011 nýta sveitarfélög og þjónustusvæði endurgjaldslaust fasteignir þær sem Fasteignasjóðurinn hefur umráðarétt yfir og nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk.  Sveitarfélögin og þjónustusvæðin greiða hins vegar á árinu 2011 ýmsan kostnað sem telst til reglubundins rekstrarkostnaðar fasteignanna í samræmi við reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica