Ráðgjafarnefnd Fasteignasjóðs

Ráðgjafarnefnd Fasteignasjóðsins

Í samræmi við ákvæði reglugerðar um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs, skipar innanríkisráðherra  þriggja manna ráðgjafarnefnd sjóðsins til fjögurra ára. Ráðgjafarnefndin tók til starfa í mars 2011 og eiga sæti í henni þau Áslaug M. Friðriksdóttir, varaborgarfulltrúi og Tryggvi Þórhallsson, lögmaður hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, samkvæmt tilnefningu Sambandsins og Lúðvík Geirsson, ráðgjafi hjá Jöfnunarsjóði, samkvæmt tilnefningu ráðherra og er  hann jafnframt formaður nefndarinnar.  Starfsmaður ráðgjafarnefndarinnar er Guðni Geir Einarsson sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði.

Ráðgjafarnefndin fjallar um stefnumótandi ákvarðanir í rekstri Fasteignasjóðsins og hefur eftirlit með starfsemi hans, en innanríkisráðherra tekur ákvarðanir um sölu eigna og ráðstöfun söluandvirðis eignanna að fengnum tillögum nefndarinnar.



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica