Heildarsamkomulag
Heildarsamkomulag um yfirfærsluna
Í því heildarsamkomulagi sem ríki og sveitarfélög staðfestu þann 23. nóvember 2010 um yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga frá og með 1. janúar 2011 eru eftirfarandi meginmarkmið lögð til grundvallar:
- Bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum.
- Stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga.
- Tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða stjórnsýslustiga.
- Tryggja góða nýtingu fjármuna.
- Styrkja sveitarstjórnarstigið.
- Einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
