Jöfnunaraðgerðir
Jöfnunaraðgerðir
Rík þörf er fyrir jöfnun meðal sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk. Helstu ástæður þess eru eftirfarandi:
- Margir fatlaðir búa í sveitarfélögum þar sem byggðar voru upp stórar þjónustueiningar.
- Tilhneiging er til þess að fatlaðir flytji í sveitarfélög þar sem kostur er á fjölbreyttri þjónustu.
- Sá hópur sem þarf á mikilli þjónustu að halda er hlutfallslega fámennur og því getur tilviljun ráðið því hversu margir eða fáir fatlaðir búa í sveitarfélögum.
Grundvöllur kostnaðargreiningar og jöfnunaraðgerða vegna þjónustu við fatlaða mun byggja á samræmdu heildarmati á landsvísu um þjónustuþörf þeirra einstaklinga sem hafa mestar þarfir fyrir þjónustu. Sjá umfjöllun um SIS-matið.
Á árinu 2012 mun sérstakt jöfnunarkerfi verða tekið í notkun sem ætlað er að tryggja einstökum sveitarfélögum og þjónustusvæðum nægar tekjur til að standa undir kostnaði vegna þjónustunnar við fatlaða.
