Samráðsnefnd
Velferðarráðherra hefur skipað Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks og hefur nefndin skipunartíma til ársloka 2014. Hlutverk samráðsnefndarinnar er meðal annars að vera ráðherra og sveitarfélögum til ráðgjafar um málefni fatlaðs fólks, hafa umsjón með framkvæmd á yfirfærslu þjónustu við fatlaða, gera tillögur um breytingar á tilhögun yfirfærslunnar eftir því sem ástæða er til, stýra endurmati yfirfærslunnar og fjalla um vafamál og álitaefni sem upp kunna að koma.
Formaður Samráðsnefndarinnar er Jónína Rós Guðmundsdóttir alþm. Aðrir nefndarmenn eru: Björk Vilhelmsdóttir, Gyða Hjartardóttir og Jón Óskar Pétursson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Hlynur Hreinsson frá fjármálaráðuneyti, Guðni Geir Einarsson, innanríkisráðuneyti, Gerður Aagot Árnadóttir Þroskahjálp og Hrefna K. Óskarsdóttir, Öryrkjabandalaginu. Einar Njálsson velferðarráðuneyti er starfsmaður nefndinnar.
