Stefnumótun og endurmat

Stefnumótun og endurmat

Samkvæmt 3. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 ber velferðarráðherra ábyrgð á opinberri stefnumótun í málefnum fatlaðra sem skal gerð í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og í samráði við heildarsamtök fatlaðra og aðildarfélög þeirra.  Fyrir 1. október 2011 skal ráðherra leggja fram á Alþingi tillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks, þar sem fram skal koma skýr forgangsröðun verkefna, markviss aðgerðaráætlun og skilgreindir árangursmælikvarðar.

Í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlaða kemur fram í 11. gr. að á árinu 2014 skuli fara fram sameiginlegt mat aðila á faglegum og fjárhagslegum árangri tilfærslunnar byggt á þeim markmiðum sem fram eru sett í samkomulaginu.  Ef í ljós kemur veruleg röskun á forsendum tilfærslunnar skulu teknar upp viðræður um nauðsynlega leiðréttingu.



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica