Tekjur
Á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða frá 6. júlí 2010 er áætlað að 10.700 m.kr. samtals renni til málaflokksins í á árinu 2011 með hækkun útsvars um 1,2 prósentustig og með beinum framlögum frá ríki.
Af útsvarshækkuninni renna 0,25 prósentustig beint til sveitarfélaga /þjónustusvæða.
Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélag í tengslum við yfirfærsluna nema 0,95 prósentustigum af framangreindri útsvarshækkun auk beinna framlaga frá ríki sem renna til sérstakra verkefna í tengslum við yfirfærsluna.
