Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk

Á árinu 2011 tekur útgjaldaþörf þjónustusvæða og sveitarfélaga mið af framreiknuðum rekstrarkostnaði ársins 2010. Við áætlun almennra  framlaga  úr Jöfnuanrsjóði til þjónustusvæða/sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlaða  eru útsvarstekjur sem renna til einstakra þjónustusvæða og sveitarfélaga vegna yfirfærslunnar áætlaðar. Mismunur heildarútgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna er grunnur framlagsins á árinu 2011.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomunum tekjum       Jöfnunarsjóðs af  0,95% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Að teknu tilliti til áætlunar um ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lagði      ráðgjafarnefnd sjóðsins til í byrjun árs 2011 að úthlutað yrði almennu framlagi samtals að fjárhæð 7.833.246.000 kr. til þjónustusvæða/sveitarfélaga á árinu 2011 vegna þjónustu við fatlað fólk. Í tillögugerð nefndarinnar er gert ráð fyrir að viðbótarframlag fáist frá ríki vegna greiðslna til þjónustusvæða og sveitarfélaga á almennum framlögum  í   janúarmánuði 2011. Gangi áætlun nefndarinnar um ráðstöfunarfjármagn sjóðsins á árinu ekki eftir verður úthlutun framlaga til þjónustusvæða/sveitarfélaga aðlöguð að fjármagni til ráðstöfunar vegna verkefnisins. Vinnuhópur skipaður fulltrúum frá ríki og      sveitarfélögum er nú að störfum  til að vinna að lausn vandans.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica