Biðlistar
Biðlistar
Í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu á þjónustu við fatlaða er lögð áhersla á að stytta þá biðlista sem eru til staðar eftir þjónustu. Sérstök framlög verða á fjárlögum á árunum 2012 og 2013 til að sinna þessu verkefni. 200 milljónir eru til úthlutunar á árinu 2012 og 400 milljónir árið 2013.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu um úthlutun framlaga vegna biðlista með hliðsjón af niðurstöðum úr samræmdu þjónustumati á þeim einstaklingum sem eru á biðlistum hjá þjónustusvæðunum.
