Breytingakostnaður

Breytingakostnaður

Ljóst er að margvíslegur kostnaður fellur til við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.  Stærstu útgjaldaliðir snúa að nýju samræmdu þjónustumati fyrir alla hópa fatlaðra og útfærslum á kostnaðargreiningu og jöfnunaraðgerðum varðandi bæði þjónustu og húsnæðismál. Þá munu framlög vegna breytingarkostnaðar standa straum af starfi samráðsnefndar og almennum upplýsinga- og kynningarmálum, bæði ráðuneyta og Sambands ísl. sveitarfélaga, og kostnaði við faglegt og fjárhagslegt endurmat vegna yfirfærslunnar sem á að liggja fyrir í eigi síðar en í árslok 2014.  Nánari útfærslu á þeim framlögum sem greidd eru á grundvelli breytingakostnaðar er að finna í 8. gr. reglugerðar nr. 1066/2010 um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlaða.

Framlög vegna breytingakostnaðar eru 200 milljónir á árinu 2011, 395 milljónir árið 2012 og 215 milljónir árið 2013.  Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli breytingakostnaðarins að fenginni umsögn frá Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica