NPA-verkefnið

NPA-verkefnið

Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu á málum fatlaðra gerir ráð fyrir því að komið verði á sérstöku samstarfsverkefni um innleiðingu notendastýrða persónulegrar aðstoðar.  Er sú ákvörðun í samræmi við bæði samþykkt Alþingis og stefnumörkun sveitarfélaganna.   Skipuð hefur verið sérstök verkefnisstjórn til stýra þessari innleiðingu þar sem eiga sæti fulltrúar ríkisins, sveitarfélaga og notenda.  Frekari upplýsingar um  NPA-verkefnið er að finna á heimasíðu velferðarráðuneytisins.

Framlög til NPA-verkefnisins eru samtals 300 milljónir, 50 milljónir á árinu 2011, 100 miljónir árið 2012 og 150 milljónir árið 2013.  Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs gerir tillögu um úthlutun framlaga vegna þessa verkefnis í samræmi við tillögur NPA-verkefnisstjórnarinnar.


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica