SIS-matið

SIS-matið

Grundvöllur kostnaðargreiningar og jöfnunaraðgerða vegna þjónustu við fatlaða byggir á því að unnið sé samræmt heildarmat á landsvísu á þjónustuþörf þeirra 1000 einstaklinga sem hafa mestar þarfir fyrir þjónustu. Verkefnisstjórn sem undirbjó yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga samþykkti að nota matskerfið “Mat á stuðningsþörf” (Supports Intensity Scale, SIS) en markmiðið með matinu er að finna með samræmdum hætti stig þess stuðnings sem einstaklingar með fötlun þarfnast til að lifa eðlilegu lífi með fullri þátttöku í samfélaginu.   Metin er stuðningsþörf einstaklinga með fötlun við viðfangsefni á heimili og utan heimilis og þess sem lítur að símenntun, starfi, heilsu, öryggi og félagslegri virkni.

Fyrsti áfangi matsins hófst á árinu 2009 og annast Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins matsgerð og úrvinnslu.  Niðurstöður úr grunnúrtaki lágu fyrir í sumarbyrjun 2011 og verða þær nýttar sem forsenda fyrir úthlutun úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga og þjónustusvæða vegna þjónustu við fatlað fólk fyrir næstkomandi fjárhagsár.  Sambærilegt SIS mat verður einnig unnið fyrir þann hóp fatlaðra sem er á biðlista eftir þjónustu sem eru nærri 200 einstaklingar og þá sem koma nýir inn á þjónustulista fram til ársins 2013. 

Einnig er í undirbúningi sérstakt mat á stuðningsþörf barna með fötlun. Endurmat á þjónustuþörf fatlaðra mun verða framkvæmt fyrir árslok 2013 í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga um faglegt og fjárhagslegt mat á árangri tilfærslunnar.

 


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica