Starfsemi
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Innanríkisráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs en honum til ráðuneytis er fimm manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að loknum sveitarstjórnarkosningum. Fjórir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en einn er skipaður af innanríkisráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.
Jöfnunarsjóður hefur starfað óslitið síðan 1937. Við breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga árið 1990 fór fram umtalsverð endurskoðun á starfsemi sjóðsins er fólst einkum í því að jöfnunarhlutverk hans var stóraukið. Auk þess voru sjóðnum falin tiltekin verkefni til að greiða fyrir breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og stuðla að sameiningu sveitarfélaga. Helstu breytingar, sem gerðar hafa verið á sjóðnum síðan, tengjast yfirfærslu alls grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga þann 1. ágúst árið 1996 og yfirfærslu á málefnum fatlaðra 1. janúar 2011.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs
Hlutverk ráðgjafarnefndar er að gera tillögur ráðherra um úthlutanir framlaga úr sjóðnum annarra en bundinna framlaga, sbr. 6. gr. reglug. nr. 960/2010. Í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs eiga nú sæti:
-
Guðmundur Bjarnason, fyrrv. bæjarstjóri, formaður
-
Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður í Sveitarfélaginu Skagafirði,
-
Björk Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
-
Hermann Jón Tómasson, bæjarfulltrúi í Akureyrarkaupstað,
-
Þórunn Egilsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Vopnafjarðarhreppi.
Varamenn í ráðgjafarnefnd
-
Jórunn Einarsdóttir, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjabæ
-
Halla Sigríður Steinólfsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð,
-
Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ,
-
Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði,
-
Albertína Elíasdóttir, bæjarfulltrú í Ísafjarðarbæ.
Starfsmenn sjóðsins
-
Elín Pálsdóttir, forstöðumaður
-
Elín Á. Gunnarsdóttir, sérfræðingur
-
Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur
-
Halldór Vídalín Kristjánsson, stjórnsýslufræðingur
-
Lúðvík Geirsson, ráðgjafi
Heimilisfang sjóðsins er eftirfarandi:
Innanríkisráðuneytið
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Sölvhólsgötu 7
150 Reykjavík
Sími: 545 9000
Bréfasími: 552 7340
